













Yndisleg helgi er búin og eftir er tregablandin tilfinning í maganum, söknuður en hamingja yfir þessari lánsemi að eiga svona góða vini. Við lékum okkur börn sem fullorðnir. Það verður að viðurkennast að sumt er ekki ritfært né myndfært hvað varðar leikgleði hinna fullorðnu yfir veigum víns og matar en ógleymanleg augnablik voru vissulega mörg og tekin var ákvörðum um að láta leikgleðina endast allt lífið og taka góða takta saman á elliheimilinu. Að sjálfssögðu var farið í skylduheimsóknir í Svampinn, Wadköping, Slottið og svo var Ronny Petterson heímsóttur.Hamingjan, ærslin og vináttan eru orð helgarinnar.





































