Er á kafi í umsóknarferli, setti fyrst niður á íslensku hversvegna ég vel lýðheilsu umfram annað, þau ykkar sem nenna að lesa þetta, gjörið svo vel.
Master´s application LU20070115-1104947
Afhverju vel ég Lýðheilsu?Þetta nám er kjörin leið til að leiða saman félagsvísindin, listina og áhuga minn á heilbrigði, velferð og vellíðan fólks. I gegnum störf mín og líf mitt sem uppeldisfræðingur, kennari og listamaður hef ég fengið æ meiri áhuga á því hvað manneskjan sjálf getur gert til ad gera lif sitt farsælt og innihaldsríkt. Ég hef séð í störfum mínum hvað, áhugahvöt, tjáning. virkni, sköpunargáfa og stefnufesta er mikilvæg og hvernig það ásamt heilbrigðri lífssýn og lífsháttum getur stuðlað að ánægðum einstaklingum. Gildi náms, tómstunda, heilbrigðs lífstíls, vináttu- og fjölskyldutengsla eru þar seint ofmetin.
Það sem einnig vekur áhuga minn er hversu sterkar andstæður eru innan lýðheilsuvandamála. Á meðan tveir milljarðar fólks á við heilsuvandamál að stríða vegna þess að það borðar of mikið og hreyfir sig of lítið, er stærsta lýðheilsuógn heimsins enn sú sama og fyrir iðnbyltinguna. Hungur, ungbarnadauði og skortur á aðgangi að hreinu vatni.
Heilbrigd lífssýn og lífshættir eru stoðir sem ég vil efla meðal fólks á öllum aldri. Ég vil skoða gildi heilbrigðra lífshátta og tengsl þeirra við virka hugsun og nýtingu sköpunargáfunnar sem okkur er öllum gefin. Í því samhengi er mikilvægt að skapa forsendur sem stuðla að fólk uppgötvi áhugasvið sín og hæfileika og nýti sér þá.
Að fólk nái tökum á lífstíl sínum, sé virkt í eigin lífi og menningu, með ýmsum hætti, eru án efa mikilvæg tæki sem draga úr líkum á: lærðu hjálparleysi, streitu, líkamlegri sem andlegri kyrrstöðu, kulnun í lífi og starfi, ýmsum geðrænum og persónulegum vandamálum.
Lykilord áhugsviða minna eru:Heilbrigðir lifnaðarhættir
Heilbrigð lífssýn
Heilsuefling
Gildi hreyfingar og holls mataræðis
Nám, starf og tómstundir
Sköpunargáfa og virk hugsun
Áhugahvöt, fræðsla og tilleinkun
Samskipti í fjölskyldum og á vinnustöðum
Framkvæmdargleði, framkvæmdargeta og framkvæmdarmöguleikar
Forvarnir
Lykilorðin má tengja saman á ýmsan hátt, t.d. má velta fyrir sér :
Tengslum hreyfingar við afköst og starfsánægju.
Hvernig best megi virkja áhugahvöt og vilja fólks til bættra lífsvenja.
Gildi virkrar sköpunargáfu og tómstundaiðkunar á heilsu og vellíðan fólks á ólíkum aldri
Tengsl heilbrigðra fjölskyldusamskipta við tíðni hreyfingar, holls mataræðis og iðkun tómstunda.
Tengsl heilbrigðra samskipta á vinnustöðum við afköst, vellíðan, frumkvæðis, veikindadaga og starfsánægju.
Heilbrigð samskipti í fjölskyldum og vinnustöðum, hvað er það?
Iðkun hreyfingar og tómstunda og samfélagsgerð. Hver er hinn gullni meðalvegur í iðkun hreyfingar og tómstunda svo ekki orsaki streitu og tímaleysi?
Forvarnargildi heilsueflinga í skólum allt frá leikskólastigi, upp í framhalds- og háskóla.
Hönnun skilvirkrar heilsueflingar og námsefnis fyrir mismunandi skólastig og mismunandi vinnustaði.
Hvernig megi bæta við og auka ungbarnaeftirlit heislugæslustöðva. Hanna námskeið og námsefni sniðin að mismunandi þroskastigum barna og unglinga. Bæta þekkingu og tilleinkun foreldra á hollum llifnaðarháttum og jákvæðum samskiptum. Gera þá meðvitaða um að sýna fordæmi og ábyrgð gagnvart börnum sínum og stuðla að hollum lífsvenjum og lífstíls þeirra.
Þegar námi mínu er lokið í lýdheilsufræðum myndi ég vilja stofna fyrirtæki. Með það yfirmarkmið að:Styrkja þætti sem stuðla að bættir heilsu andlegri og líkamlegri hjá einstaklingum og ólíkum hópum folks á öllum aldri, fyrirtækjum og fjölskyldum og draga úr líkum á kulnun og vanlíðan sem rekja má til óhollra lífsvenja, óvirkni og slæmra samskipta.
Aðferðir:
Gerð námskeiða, fræðsla, fyrirlestrar, verkefni, námsefnisgerð, rýni í fyrirtæki, og skóla, ráðgjöf og eftirfylgni.