Thursday, August 17, 2006

hálfvitaháttur

Hvað myndir þú gera ef einhver færi að kenna barninu þínu að allir samkynhneigðir þyrftu að fara í meðferð til að verða gagnkynhneigðir og eingöngu þannig væri hægt að stuðla að hamingju þessa "ógæfusama" fólks?

“Villist ekki! Hvorki munu saurlífismenn…né kynvillingar guðs ríki erfa!(1.Kor6:9)

Hvurslags hálfvitaháttur er þetta?

12 comments:

imyndum said...

nema samkynhneigðir teljist hvorki til saurlífismanna né kynvillinga!

Anonymous said...

hallelúja

brynjalilla said...

Nei einmitt hugsa sér hálfvitaháttinn að samkynhneigðir hafa gjarnan og því miður enn þá af sumum verið settir í sama flokk og barnaníðingar. Eða í sama flokk og nasistar og kommúnistar sber. Snorri í Betel sem mér skylst að kenni eitthvað í Brekkuskóla á Akureyri...ég segi bara enn og aftur hvurslags hálfvitaháttur er þetta eiginlega???

brynjalilla said...

Nei einmitt hugsa sér hálfvitaháttinn að samkynhneigðir hafa gjarnan og því miður enn þá af sumum verið settir í sama flokk og barnaníðingar. Eða í sama flokk og nasistar og kommúnistar sber. Snorri í Betel sem mér skylst að kenni eitthvað í Brekkuskóla á Akureyri...ég segi bara enn og aftur hvurslags hálfvitaháttur er þetta eiginlega???

Anonymous said...

Amen.

imyndum said...

!!!!!!!!! Er Snorri í Betel að kenna í Brekkuskóla??????

Anonymous said...

já hann kennir í Brekkuskóla

imyndum said...

Er manninum treystandi fyrir börnum? Ég er að spyrja í alvöru! Mér fynst þetta næstum eins og Steingrímur Njáls væri ráðinn í kenslu.

Anonymous said...

Sammála öllum að ofan. Hálfvitaháttur, punktur.
Rakst annars inná síðuna þína, Brynja, í gegnum svp.is. Sá þig ekkert aftur í sumar, því miður. Langaði í myndina þína en maðurinn var fárveikur og ekki gat ég ákveðið þetta ein. Verður ekki önnur sýning næsta sumar? Annars vildi ég bara kvitta og láta vita af mér hér, er sjálf komin með bloggsíðu, ef þú hefur áhuga að kíkja: http://blog.central.is/ingaflakkari
Kær kveðja,
Ingibjörg

Anonymous said...

Nei, sorry, það er
http://www.blog.central.is/ingaflakkari

Bromley said...

Ég myndi skrifa bréf til menntamálanefndar Akureyrar og kanna formlega hvort þetta sé hluti af íslensku námskránni.
Út frá því svari væri hægt að gefa manninum áminningu.
Ég var með smá heimþrá í gær til Akureyrar, þetta læknaði hana all snarlega.
Kv. Ásta

Anonymous said...

Innsýn í íslenskt þjóðfélag í dag kæra systir........

Opið bréf til Gunnars í Krossinum, Jón Vals Jenssonar, Snorra í Betel sem
og annarra bókstafstrúarmanna sem hafa "Sannleikann" sín megin og birtu
m.a. auglýsingu í Morgunblaðinu sl.Sunnudag varðandi "lækningu" við
samkynhneigð:


Kæru bókstafstrúarmenn,
Kærar þakkir fyrir upplýsa fáfróðan almenning á Íslandi varðandi "Guðs lög"
sem og um "sannleikann". Það er ljóst að það er mjög margt sem maður getur
lært frá ykkur - vitrari mönnum - og ég reyni t.d. að miðla ykkar fróðleik
eins víða og ég get þar sem ég tel ykkur vera eins og þið segið - boðberar
sannleikans í einu og öllu.
Það eru hinsvegar nokkur atriði sem ég þarf aðstoð við varðandi "Guðs orð"
því eins og þið bentið alltaf á, er sannleikurinn að finna í guðs orði sem
og orð Guðs er óbreytanlegt og eilíft.
Eftir að hafa lesið Guðs orð undanfarið langar mig að biðja ykkur að fræða
mig aðeins um eftirfarandi:

1. Mig langar að selja dóttur mína í þrældóm eins og leyft er í Exodus 21:7
- hvað teljið þið eðlilegt markaðsverð fyrir hana þar sem þið eruð jú
sérfræðingarnir hérna, er 18 ára og gullfalleg.

2. Ég veit að ég má ekki hafa neitt samband af neinu tagi við konu á meðan
hún er ´"túr" sbr. Lev 15:19-24....vandamálið er hvernig ég segi henni
þetta ? Virðast flestar bara móðgast.....

3. Í Lev 25:44 segir skýrt að ég megi hafa þræla - bæði karlmenn sem og
konur, svo framarlega sem þeir eru keyptir frá nágrannalöndum okkar.
Vandamálið er að ég er mjög hrifinn af Þjóðverjum og því langar mig að
spyrja af hverju ég megi ekki eiga þræla frá Þýskalandi þótt það sé ekki
nágrannaland okkar ?

4. Ég á vin sem krefst þess að vinna á "Sabbath" deginum. Í Exodus 35:2
segir skýrt að hann skuli tekinn af lífi fyrir slíkan óhæfuverknað. Er ég
skyldugur til að drepa hann sjálfur eða get ég látið öðrum það eftir ?

5. Í Lev 21:20 segir skýrt að ég megi ekki nálgast altari guðs ef ég hafi
sjónskekkju , þ.e. ekki fullkomna sýn. Ég verð að viðurkenna að ég nota
lesgleraugu - er ekki eitthvað svigrúm hérna svo ég geti nálgast altari guðs?

6. Flestir karlkyns vinir mínir fara í klippingu og snyrta nefhár
osvfrv.,þrátt fyrir að þetta sé stranglega bannað skv. Lev 19:27. Á hvaða
hátt ber að taka þessa menn af lífi ?

7. Frændi minn er bóndi. Því miður brýtur hann Lev 19:19 þar sem hann er
með 2 uppskerur á sömu jörð. Kona hans brýtur einnig sama ákvæði Guðs orðs
með því að nota 2 mismunandi efni í fötin sín (Cotton/Polyester). Hann
blótar einnig og rífur kjaft. Er það virkilega nauðsynlegt að safna öllum
bæjarbúum til að grýta þau til dauða eins og segir í guðs orði (Lev
24:10-16) ? Er ekki bara hægt að brenna þau til dauða innan fjölskyldunnar,
eins og við gerum með fólk sem sefur hjá ættingjum sínum ?

Ég veit að þið hafið skoðað og lært þessar kenningar í einu og öllu svo ég
er sannfærður að þið getið hjálpað. Og síðast en ekki síst - bestu þakkir
fyrir að benda okkur á að Guðs orðs er ÓBREYTANLEGT og EILÍFT.

Bestu kveður,
Hinir fáfróðu