Tuesday, June 16, 2009

hafið og himininn

Jú svo sannarlega er ég hér enn. Annríkið hefur hinsvegar verið í heimsókn og er orðið nokkuð rótfast blessað. En allt gengur vel og við göngum saman í nokkuð viðráðanlegum takti þó komi dagar sem við vitum ekki alveg í hvaða átt við eigum að fara og eigum það til að rekast aðeins saman. Allavega hafa samt afköst verið góð. Ég kláraði rannsóknina mína með góðum árangri og varði hana listilega svei mér þá og fékk hrós sem hleypti mér langleiðina til tunglsins, heimferðin var líka ljúf og ég lenti vel þó hinsvegar undarlegt nokk tók sig nokkra daga að venjast því að þurfa ekki að halda sér stíft að verki við tölvuna, en úff ljúft að hafa hana ekki lengur í eftirdragi eins og sjá má af litlum afköstum hér í bloggheimum. Útskriftin var yndisleg, ma og pa, bróðir minn og mágkona Vigga og Þórdís vinkona mín komu sem gerði allt svo hátiðlegt. Ég fékk þann heiður að halda ræðu nemenda, við fengum kampavín og snittur og góð orð frá ýmsu mætu fólki í tilefni dagsins. Það var skælt í enda hans enda stórar kveðjustundir, sérstaklega fannst mér erfitt að kveðja elsku vini mína Alex frá Palestínu og Taye frá Eþiópíu, víst munum við hittast aftur en hvenær veit ég ekki, þó vissulega á reunion 2014. Fleiri kveðjustundir hafa fylgt í kjölfarið, Nannan er farin til Íslands, börnin eru hætt í skólunum sínum og í gærkveldi voru Helga og Einar knúsuð sem eru núna ljúfurnar komin til Sviss. En geimið heldur áfram, nú eru tengdó komin í hús og bæði settin því í koti sem reyndar er á rúi og stúi vegna fyrirhugaðra flutninga. Þjóðhátíðardagurinn á morgun, afmælið mitt næst, svo jónsmessa og loks Danmörk og sigling heim eftir 4 ára ferðalag. Elskurnar mínar, mikið þætti mér vænt um að fá komment, líklega mun ég ekki fremja nein stórvirki í bloggheimum á næstunni en ég er hér enn þó lítið fyrir mér fari þessa dagana. Knús á ykkur og gleðilegt alltsaman!

Erfitt að kveðja kennarann sinn, þær snöktu í kór þessar elskur
Með ömmu og afa á skólaslitum
blått är mitt hårband, blå är min kjol, blåa är blåbär, almáttugur hvað þau sungu fallega
Sungið um sumarið á skólaslitum
Í matarboði hjá Orrhede familjen
Allir opna körfuboltavöll
HBV og Olaf ásamt öllum hinum opna körfuboltavöll
Sonurinn dansar þjóðdansa á skólaslitum
Hörður Breki blæs tyggjókúlur með vinum sínum
Alexander the great
Nick kollegi minn og vinur, Erika og fallegi Alexander
í matarboði hér, Lucia, Mihaela, elsku rúmenska fólkið mitt og Alexander, yndislegust
Gæludýrin
Hún valdi lit á skápinn sinn sem minnir hana á hafið og himininn
Dugleg
Dagrún að leika skjaldböku og syngja
The right attitude hjá unglingunum
Ferðalag
Kirsuberjatré
Hlaðborð hjá Anitu
þessa mynd þarf ekki að útskýra
Fundum þessa á loppis, sænskir ruggustólar frá 1920 til að eldast í
Taye vinur minn og ég, ég skældi mörgum tárum þegar við kvöddumst
Vinkonur
Úr sitthvorri áttinni
Yndislegur dagur 6. júní 2009, öllu var skartað
Litla Gunna, litli Jón og lillarnir þeirra
Yndislegu foreldrar mínir og lýðheilsufræðingurinn þeirra
Við Þórdís nývaknaðar á útskriftardaginn minn
Yndislegu vinir mínirAlex
Hópamynd
Reunion 2014, counting down

17 comments:

imyndum said...

Enn gaman að fá blogg, ég er búin að hugsa svo mikið til þín núna undanfarið, vitandi um allt sem er að gerast í lífinu þessa dagana.

Frábærar myndir sem þú hefur sett inn. Myndir sem segja svo mikið, ég verð sérstaklega að kommentera á myndina "Við Þórdís nývaknaðar á útskriftardaginn minn" ég vildi óska að ég vaknaði alltaf svona sæt eins og þið eruð á þessari mynd ;)

Kossar kæra vinkona og bon voyage yfir hafið og heim. Hlakka til að fá næsta blogg... hvaðan sem það verður
Rósa

Goa said...

Til Hamingju elsku Brynja!
Þetta er bara frábært, fallegt og svo líka eitthvað svo sorglegt.

Gangi þér vel með allt og allt...

edda said...

Yndislegt blogg - skældi eiginlega og hló og fagnaði um leið :)
Hlakka mikið til að fá ykkur heim...miklu meira en þið getið ímyndað ykkur :)

Ástarkveðjur
Edda og co

Anonymous said...

Gaman að fá innsýn í heim þinn þarna í Svealandi Brynja mín. Skemmtileg skrif og frábærar myndir. Hlakka til að sjá þig. Góða heimferð.

Kveðjur frá okkur gömlu skólasystkinum þínum í Aðalstrætinu á Akureyri.

Anonymous said...

Til hamingju með þetta allt saman Brynja!
Alltaf erfitt að kveðja, en það eru líka skemmtilegir hlutir og kærir endurfundir sem bíða á hinum endanum, ekki gleyma því!

Baráttukveðjur!

Kram, Hlíf

Fnatur said...

Sammála Eddu og er nógu væminn kani til að viðurkenna að ég skældi og fagnaði líka en samt aðalega skældi.
Þetta var allt svo fallega skrifað og myndirnar ljúka sögunni sem er samt bara rétt að hefjast.
Til hamingju kæra vinkona.
Hlakka svo mikið til að knús þig eftir nokkrar vikur.

Fnatur said...

Gleymdi einu mjööööög mikilvægu.
MY ASS að þú og Þórdís séu "nývaknaðar" á þessari mynd af ykkur ofurskvísum....múahahahahahaha. Hana nú:)

Hart, félag háskólamenntaðra táknmálstúlka said...

Kæra Brynja - það er alltaf jafn ánægjulegt að lesa bloggið þitt. Kveðjustundir eru alltaf svo angurværar. Hlakka til að hitta ykkur á Akureyri næst þegar við eigum leið þar um - hvenær sem það nú verður.
Gangi ykkur allt í haginn ;)
Knús og kossar frá Þýskalandi.

Anonymous said...

Verð að commenta á 2 myndir - mín bara með plummer að mála - og rosalega vaknið þið Þórdís fallegar. En einmitt við erfiðar kveðjustundir er gott að hugsa til allara gleðilegu endurfundana á Akureyri.
Kv úr næsta húsi (get víst ekki sagt þetta mikið lengur :(

imyndum said...

Til hamingju með afmælið

Kossar frá Brussel....

Unknown said...

Elsku Brynja mín auðvitað erum við alltaf svona nývaknaðar hehehe... Mikið hlakka ég til að hitta þig aftur hér í sumar en það var ómetanlegt að fá að koma og vera hjá þér og sjá heimili þitt og svona bara aðeins líf þitt. Gaman að fá að pakka niður og halda með þér veisluna og bara fá að taka þátt. Sorry að ég er ekki búin að hringja enn í þig og óska þér til hamingju með afmælið hér er allt búið að vera á fullu að undirbúa Guðnýju mína fyrir Þýskalandsferð. Hún er akkúrat á þessari stundu í flugvélinni og það var erfitt að kveðja hana en ég veit að hún á eftir að eiga yndislegar 7 vikur í vonandi meiri sól en ég fékk hjá þér hehe. En í okkar tilfelli skipti veður ekki máli heldur að vera saman. Knús til þín sæta og við hittumst hressar í júlí :-)

Thordisa said...

þetta síðasta var frá mér auðvitað hehe

hannaberglind said...

Elskulega vinkona, stór tímamót framundan, tilfinningavals, tár söknuðar og gleði verða að einu.
Hlakka til að fá ykkur heim, og hafa ykkur nær, þó svo að fjarlægðin hafi aldrei verið mikil, þökk sé netheimum:) Njóttu síðustu daganna vel, góða ferð heim.
Kossar og knús frá Ak.

Anonymous said...

Ég get vottað það að þegar við Dagbjört Brynja bjuggum saman - þá steig hún alltaf svona gullfalleg fram úr rúminu á morgnana.
Segi það og skrifa!
Systa sæta

Anonymous said...


Hvenær fer gámurinn ykkar af stað frá helvíti?
Var það ekki með samskipum, því ef hann fer með ferð 926 þann öööö bíddu aðeins............. ok 2/7 frá Varb, Arnarfellið, þá tek ég hann með til íslands og er kominn 8/7 til RVK.
Ef þetta er rétt hjá mér merkið hann endilega (með þjóðhátíðarfána eða veifu) og sendið mér númerið á honum svo ég geti haft auga með honum og huggað hann og strokið honum á leiðinni.
kv Steinl

Anonymous said...

Ég var að lesa þessa ath - semd fyrir ofan mig og get bara sagt að þegar ég bjó með Brynju var hún að dddreeepast úr gelgjunni og vaknaði með rosa bleikan varalit!!

Ég er pínu drukkinn, það er sko tollfrjálst áfeingi í mínu starfi ... svo ég tók eina stroh 80%.

KV Satan

ingibjörg said...

Elsku Brynja, það er svo langt síðan ég kíkti hér inn, gaman að sjá þessar bloggfærslur, fallegar myndir og vel skrifað blogg, hlakka rosalega til að sjá þig á Akureyri eftir nokkra daga!
Knús, Ingibjörg