Friday, April 03, 2009

hvorki mynd af mús, hesti né Val á brókinni.

já hvað get ég sagt, þessi vika er í raun búin að vera ósköp ljómandi góð, hefðbundin en dásamlega sólug. Ég sit og rýni í tölur og held í hendina á tölvunni minni nokkra tíma á dag, við elskumst og rífumst og drekkum mikið te, english breakfast. Tölurnar sitja um mig í vöku sem svefni, elta mig á næturnar í formi ókláraðra stúdentsstærðfræðiprófa meðan Valur liggur við hliðina á mér, dreymandi um að vera á brókinni á Glerártorgi í jólaösinni, veit ekki alveg hvort er betra.

Draumarugl okkar hjóna má líklega skrifa á áhyggjur varðandi húsasölu en áhuginn á húsakaupum þessa daganna er eins og smár, rænulítill og hræddur músarungi. Við horfumst í augu við að hafa fjárfest meðan músin gladdist, dansaði og spilaði á fiðlu í rauðum skóm. Öll partý enda og föl músin fylgir okkur taktvisst og við höfum svolitlar áhyggjur af henni. Íslandshesturinn okkar horast niður ræfillinn, hann ber sig þó vel enda klyfjaður reynslu, þekkingu, gleði og kláruðum verkefnum þannig rýrð er ekki á hann sleginn, þessa elsku. Enn er hann vel tenntur með alla burði til að hlaða á sig kílóum á ný. Við reynum að halda lífi í músinni, gefum henni vatn og vítamín. Vítamín plan B og vítamín plan C, lúra ennþá í makindum enda A vítamín planið besti kosturinn og það vinsælasta hjá okkur, heim í sumar viljum við fara. Við sjáum svo til hvað gerist, kannski er þarna fjölskylda sem vantar hús eins og okkar sem bankar upp á fljótlega og tryggir músinni okkar allavega heilsu og væna strigaskó. Allt í lagi þó hún leggi rauðu skónum sínum, þeir eru slitnir og úr sér gengnir, músin er orðin reynslunni ríkari, praktískari og vill endingabetri skó, sem má skreyta eftir hentugleikum, uppáhaldsliturinn hennar er bleikur.

Indæli föstudagur,við Dagrún eltum appelssínugult fiðrildi, það kom alltaf tilbaka til okkar boðberi hláturs og kætis, sem sé yndisleg stund sem við mæðgur áttum í garðinum í dag. Við náðum mynd af gleðigjafanum en því miður fylgja ekki með myndir af mús, hesti né Val á brókinni.

Á morgun koma góðir gestir.


7 comments:

hannaberglind said...

æji hvað þú ert krúttleg, ljóðræn og skemmtileg - elska þig mín kæra vinkona:)
kossar og knús úr snjónum

edda said...

Held ég ég myndi frekar vilja vera á brókinni á Glerártorgi heldur en að vinna í öryggismörkum og blehh...
Þetta er góður hestur...

Sjáumst :)
Edda

Þorgerður Sigurðardóttir said...

Góðan daginn! Beilsa Valla og já zæll, hnéð mitt enn stokkbólgið og ég er búin að týna kynþokkanum!

Anonymous said...

þetta er bara yndislegt, bæði tregumblandið og einnig fullt af gleði og jákvæðni..þetta gengur allt upp Brynja mín er viss um það ást og knús Ragna gamla geitin;)

Britta said...

ååå...nässelfjäril och pärlhyacinter...suck... vackra skåneland...Här i norr har dock våren börjat närma sig så sakteliga men det är fortfarande snö och is kvar. Längtar mig hemåt i tankarna.
Puss o kram från Karlskoga

Ingveldur said...

Fallegt fiðrildi og flottur texti. Er búin að vera í vorinu fyrir sunnan um helgina sem er þó ekkert greinilega miðað við það sænska =) Hlakka til að sjá hrossið í sumar!

inga Heiddal said...

mmm sé að vorið er komið til að vera hjá þe´r... Hef ekki kíkt hér inn lengi en það er allt þessu fési að kenna nú fær maður allar fréttir þaðan... hafðu það gott yfir páskahelgina. Kram INGA