Saturday, March 28, 2009

póstpóstmódernískt plan

Áframhaldandi veðurlýsingum verður stillt í hóf í dag, þó sást í tveggja talna tölu í dag, sko tölu í plús, það var notalegt og krókusarnir blómstra og túlípanarnir eru komnir með 3 í útvíkkun. Rómantík var samt ekki beint þema dagsins í dag, póstmódernískar umræður áttu sér þó stað í biðröðinni sem við stóðum um stund í til inngöngu á "sciencefiction mässan i Malmö", umræðurnar náðust inn á póstpóstmódernískt plan en við náðum samt ekki að skilgreina "borð" né "stól" né "indi" ef út í það er farið. Ég heyrði samt skemmtilega sögu um skilgreiningu blindra með snertiskyninu á "fíl" já já best að koma sér að efninu. Þetta var reglulega gaman hápunkturinn var auðvitað að hitta Gunnar Hansen góðan vin okkar, við töluðum íslensku en hann ensku, hann varð mjög glaður að sjá okkur enda langt síðan síðast og tók verndandi utan um okkur. Dagrún var með Sprax vin sinn með, þessi fjólublái, en hann er geimvera frá Sprax plánetunni og hann býr hjá okkur þessa vikuna og fær að taka þátt í lífi fjölskyldunnar.

Laugardagurinn er sem betur fer ekki búinn, nú ætla ég að fara að spjalla við Edward Furlong og hjálpa honum að elda lasagnað sem verður í matinn í kvöld...

Það var mikið úrval af ónauðsynlegu drasli, en ég keypti mér eina mjög nauðsynlega Tinnabók, "skurðgoð með skarð í eyra eða "det sönderslagna örat" ein af mínum uppáhaldstinnabókum
Ég og besti næstbesti vinur minn Edward Furlong, hann var pínu sjúskaður en ég fékk samt kjánalegan fiðring, ég meina hann lék í uppáhaldsmyndinni minni
Með áritað plakat frá Gunnari sem sagði ég væri "cute"
Þetta gæti næstum verið mynd á jólakorti
Ég og Arnold, ég er svo skotin í honum
R2D2 var hress og ég er líka rosa skotin í Vallzenegger
Stormtroopers og elsku stelpan mín og Sprax
Sjáið hvað þeir eru glaðir með storminum
Hnjo krútt
líka ég líka ég

9 comments:

Þorgerður Sigurðardóttir said...

ég átti líka yndislega stund í fangi dóttur minnar að horfa á hananananna monntntntntoanoannaon
rosalega ertu sæt á öllum myndunum, eru þær fótosjoppaðar eða!

brynjalilla said...

tobba hættu að vera svona öfundsjúk, ég er bara svona sæt hahaha, eigum við að fara í leiðangur á morgun?

edda said...

magnað stuð þarna greinilega :)
Vá hvað Dagrún og HB eru orðin lík !!

Sjáumst svo bara bráðum ;)
Edda

edda said...

já og Vallinn svona kafloðinn !

:)

Britta said...

Coolt!!! Sciencefictionmässa!!! Avundsjuk är jag......
Puss o Kram

inga Heiddal said...

Vá flott og gaman ... Hef alltaf verið star wars sjúk....Knn allar myndirnar utan að... :=)Ha de så bra vennen den mysiga måndag... Klemms INGA

Anonymous said...

Hver er uppáhaldsmyndin þín?? með þessum Edwardi? nú kem ég alveg af fjöllum...þó ekki fæðandi barn eins og konan sem var föst á fjöllum í fyrradag...
-Ingv.

Stefán Þór said...

Þekkirðu Leðurfés? Frábært. Tær snilld þegar hann óð um með keðjusögina forðum daga í Texas. Virðist annars meinlaus að sjá í dag.

Fnatur said...

Stuð á þessum frábæru myndum. Hló mikið af "ég líka, ég líka" myndinni.
Það er nú meiri gelludugnaðurinn í þér.

Kveðja, kossar og smá öfund frá sloppakonunni.