Tuesday, December 18, 2007

trú von og kærleikur, hamsleysi og jóladívur

slurp, rop, kjamms, jáhá ég er ekki ólétt ó nei en stend mig að því að taka upp á gömlum ósiðum sem minna mig á óléttutímabilin í lífi mínu. Smákökur, sætabrauð og kakó á diskinn minn helst í öll mál, þarf að deila þessu með ykkur. Líklega máttlaus tilraun til að létta af samviskunni en hún er bara svo lítið að bjaga mig, nýt þessa hamsleysis meðan er og tek upp sportskóna þegar þorrinn gengur í garð ...ætla að baka kærleikskökur í kvöld, nafn sem sonur minn fann upp á en við setjum lítið sykurhjarta á hverja súkkulaðikærleiksköku og njótum þessvegna enn frekar að kjammsa á slíku guðafæði.

Ég dett inn í jólaskap, hlusta á jóladívurnar mínar, Carolu, Celin Dion og Maríu carey, (já ég er dívukona á jólunum og hananú og bannað að gera grín af mér) baka og skreyti á milli þess sem ég:
a. geri drög að rannsókn á Skáni um offitu og lífstíl barna og foreldra þeirra
b. Reyti hár mitt og sýni viðleitni að skilja og nota faraldsfræðilega tölfræði
c. Hanna úrræði fyrir yfirgefin börn í Rúmeníu, nánar tiltekið í borginni Galati
d. Tekst á við lífið og tilveruna með bjartsýni
e. Fræðist um heimsástandið í heilbrigðismálum og hvað heimurinn getur verið ljótur og góður í senn.

Niðurstaða: Jólin koma hvað sem öllu líður og leiðarljós mín eru trú von og kærleikur.

Trú, von og kærleikur til ykkar allra
Brynja

8 comments:

Anonymous said...

Hæ Brynja,
Takk fyrir pakkana - var að senda ykkar, vona að þeir komi fyrir jól :)
Hafið það gott um jólin - kossar og knús frá okkur,
Freydís

Thordisa said...

sakna þín mest

Anonymous said...

Mmmmmmmm hljomar vel!
Celine er nu ordin pinu treytt er tad ekki?

Anonymous said...

Tek bara undir trú, von og kærleika með þér sætust.
Verður Celine einhvern tímann þreytt ??

Fnatur said...

Hey beibe.
Það er allvegna pottþétt mál að Celine (þreytt eða ekki þreytt) kjamsar ekki á kærleikskökum og kakói í öll mál. Alltaf sama baunaspíran.
Ég er reyndar að ganga í gegnum þessa sömu gervióléttu og finnst heitt kakó með rjóma nauðsynlegt í öll mál. Þú ert sem sagt ekki ein í þessum ham og væri enn betra ef við gætum smjattað saman á jólakökunum.

Ást, trú og kærleikur til þín frá mér.

Anonymous said...

ég mæli með suðusúkkulaði :)

á undan, með og á eftir sem flestum máltíðum :)

Elska ykkur
Edda

Anonymous said...

ekki spurnig að missa sig á þessum árstíma, hvers vegna annars allt þetta matarumstang - enginn mórall - bara njóta, notum hina 11 mánuðina á árinu til þess:)

fallega hárið þitt er ekki þess virði að því verði fórnað vegna a, b, og c. alla vegana ekki yfir jólin;)

jólakossar og knús
hannaberglind

Anonymous said...

Gleðileg jól,söknum ykkar í jólagrautnum,hafið það sem allra best. Kv. Ásta Bensi Pétur.