Monday, May 12, 2008

Monti Grobbason í Stångby


þetta var yndisleg helgi, Lilýlillan kom í heimsókn og við nutum lífsins með henni, ljúfastan gladdi okkur öll. Borðuðum hér úti í garði með Tobbu og kó á föstudagskvöldinu og smjöttuðum á jarðarberjum og ananas sveipuðum ljúfengri súkkulaðisósu. Meðan frúrnar og ungfrúin ræddu listir og unaðssemdir horfðu börnin ásamt feðrum á klassíska bleika pardus mynd, hlátursrokurnar heyrðust til næstu bæja. Við vorum boðin í brunch til Tobbu Túttu á laugardegingum og það var með eindæmum rausnarlegt eins og alltaf. Þar voru staddar nokkrar góðar íslenskar valkyrjur til viðbótar og hersingin fór á flóamarkað í hverfinu. Stórkostlegt að sjá á eftir Tobbunni um leið og skotið var inn, reykjarmökkurinn stóð aftan úr henni enda gerði hún líklega bestu kaupin ásamt syni sínum sem keypti sér þetta fína sjónvarp á fimmtíu kall, sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Við Valur keyptum okkur tvo týpíska sænska ruggustóla, handsmíðaða með fallegu handbragði, núna sitjum við öllum frístundum á veröndinni og ruggum í takt og tyggjum strá. Við snæddum svo íslenskt grill lamb á laugardagskvöldinu, sem var unaður en ég skellti deginum áður í mortél:

Vænum slurki af fersku rósmaríni, timjani og hvítlauk (úr garðinum, montigrobbason), fínt rifnum sítrónuberki og slurki af olívuolíu og kramdi vel og lengi. Kryddaði lambið með gamla góða aromatinu og kött og grillkryddinu, nuddaði því vel inn í, smurði svo með mortélsmaukinu, vafði inn í álpappír og lét taka sig í sólarhring, grillaði við vægan hita og kjetið bráðnaði í munni og var svo gott að beinið var nagað svo stór sá á.

Ströndin var áfangastaður sunnudagsins. Krakkarnir og Valur voru dugleg að stíga í saltan sjó en ég sá um að passa svæðið okkar á meðan með Lilý, því miður engar myndir úr strandferðinni en Monti Grobbason gleymdi myndavélinni...já sem sé frábær helgi og viðburðarrík, takk fyrir mig.











7 comments:

Anonymous said...

Flottar myndir!
Hefði gjarna viljað sjá Tobbu á loppisinum:)
Annars finnst mér næstsíðasta myndin bara vera eins og úr desperate houswives!

Anonymous said...

frábærar myndir og dásamlegt veður hjá ykkur en dásamlegast af öllu að sjá og heyra hvað þið hafið notið lífsins og samvistanna hvert við annað þessa helgi.Hér var helgin aðallega notuð í tiltekt enda ekki sérstakt veður fyrr en í dag þá fór sólin loksis að skína og var hlýtt og gott, við vorum á Húsavík í dag við jarðarför Krissu yngri dóttur Hólmfríðar Ben vinkonu minnar, elsku stelpan hafði átt við lyfjafíkn að stríða og tók að lokum of stóran skammt aðeins 26ára gömul hún átti 2syni 10 og 6 ára gamla svo við erum stundum minnt óþægilega á hvað heimurinn getur verið miskunarlaus. hlakka til að sjá ykkur öll í júní kossar og knús frá okkur. tengdó

Fnatur said...

Blessaður Monti Grobbson frá Montstöðum í Montfirði. Það er greinileg að maður þarf ekki að hafa áhyggjur af þér í Sven fyrst þú ert umvafin þessu öfluga víkingagengi, sól, blíðu og endalausum veisluhöldum. Myndirnar af körkkunum alveg hreint yndislegar og ég sé ykkur Val fyrir mér sjötug saman enn að tyggja strá í þessum ruggustólum:)

Anonymous said...

trúi ekki þessu veðri, við hérna er maður bara glaður á meðan það snjóar ekki. Öfunda ykkur af mátíðum á sólpalli og huggulegheitum í flottum ruggustólum
kossar og knús frá Ak.

Thordisa said...

Búin að vera inni í allan dag að breyta í herbergi Guðnýjar reynar ánægð með afraksturinn en hefði viljað vera úti.

Anonymous said...

Þetta er alger sólstrandarfílingur hjá ykkur. Fallegar myndir af fallegu og skemmtilegu fólki. Hafið það gott.
Kram, Lóla.

Anonymous said...

Vá, öfund öfund yfir öllu þessu góða veðri! Flottar myndir af flottu fólki, og rosalega er lýsingin á lambakjötsmaríneringunni girnileg!